Fara í efni
Fréttir

Logi Már efstur, Hilda Jana í öðru sæti

Efstu fjögur á lista Samfylkingarinnar. Frá vinstri: Kjartan Páll Þórarinsson, Hilda Jana Gísladóttir, Logi Már Einarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021 var samhljóða samþykktur á fundi kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í kvöld.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar, þingmaður og arkitekt leiðir listann og annað sætið skipar Hilda Jana Gísladóttir bæjarfulltrúi á Akureyri, formaður SSNE og fyrrverandi sjónvarpsstjóri N4. Akureyri.net greindi var frá því fyrr í dag að uppstillinganefnd myndi leggja það til.

Í þriðja sæti er Eydís Ásbjörnsdóttir forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð og framhaldsskólakennari, fjórða sæti skipar svo Kjartan Páll Þórarinsson íþrótta- og tómstundafulltrúi í Norðurþingi.

„Ég er stoltur af því að leiða áfram lista Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi,“ er haft eftir Loga Má Einarssyni í tilkynningu frá flokknum. „Allir frambjóðendur Samfylkingarinnar í kjördæminu eru gríðarlega öflugir, en það sem einkennir efstu fjögur sætin á listanum er ekki síst öflugur bakgrunnur í sveitarstjórnum. Öll höfum við setið í sveitarstjórnum og þekkjum vel mikilvægi nærþjónustunnar og nauðsyn þess að auka samvinnu og traust milli ríkis og sveitarfélaga. Ég hlakka til kosningabaráttunnar með þessum góða hópi,“ segir formaðurinn.

„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og ég hlakka til kosningabaráttunnar sem framundan er. Ég brenn fyrir jöfnuði, þá ekki síst byggðajöfnuði, enda tel ég að við sem samfélag eigum mikið undir því að skapa hverjum einstaklingi skilyrði til þess að vaxa og dafna á eigin forsendum í landi sem bæði hefur upp á að bjóða sterka höfuðborg og öflugar landsbyggðir,“ segir Hilda Jana Gísladóttir í tilkynningunni.

Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi:

  1. Logi Einarsson, Akureyri - Alþingismaður og formaður Samfylkingarinnar
  2. Hilda Jana Gísladóttir, Akureyri - bæjarfulltrúi og formaður SSNE
  3. Eydís Ásbjörnsdóttir, Eskifirði - framhaldskólakennari og bæjarfulltrúi
  4. Kjartan Páll Þórarinsson, Húsavík - íþrótta- og tómstundafulltrúi
  5. Margrét Benediktsdóttir, Akureyri - háskólanemi
  6. Sigurður Vopni Vatnsdal, Vopnafirði - deildarstjóri á leikskóla
  7. Ísak Már Jóhannesson, Akureyri - umhverfisfræðingur
  8. Lilja Guðný Jóhannesdóttir, Neskaupstað - skólameistari
  9. Ólafur Haukur Kárason, Siglufirði - byggingameistari
  10. Guðrún Einarsdóttir, Húsavík - hjúkrunarfræðinemi
  11. Jóhannes Óli Sveinsson, Akureyri - framhaldsskólanemi
  12. Nanna Árnadóttir, Ólafsfirði - félagsliði á öldrunarheimili
  13. Baldur Pálsson, Egilsstöðum - Austurlandsgoði
  14. María Hjálmarsdóttir, Eskifirði - verkefnisstjóri
  15. Sigríður Huld Jónsdóttir, Akureyri - skólameistari
  16. Magni Þór Harðarson, Eskifirði - ráðgjafi
  17. Björgvin Valur Guðmundsson, Stöðvarfirði - leiðbeinandi í grunnskóla
  18. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Akureyri - alþingismaður
  19. Svanfríður Inga Jónasdóttir, Dalvík - fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri
  20. Kristján L. Möller, Siglufirði - fyrrverandi alþingismaður og ráðherra

Fréttin frá því fyrr í dag: Hilda Jana í 2. sæti í þingkosningunum?