Ljósaskipti í Boganum – lokað í nokkrar vikur
Fjölnota íþróttahúsinu Boganum á Þórssvæðinu verður lokað frá og með næsta þriðjudegi, 1. september vegna uppsetningar á nýrri lýsingu í húsinu. Ljósin sjálf voru keypt í fyrra og kostuðu 38 milljónir króna, en hafa verið geymd á lager hjá umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar. Nú er loks komið að því að setja þau upp, og um leið að taka þau gömlu niður.
Samkvæmt minnisblaði sem lagt var fram á fundi umhverfis- og mannvirkjaráðs 19. ágúst hefur dregist að endurnýja lýsinguna í Boganum vegna annarra framkvæmda á Þórssvæðinu. Ljósin voru keypt í fyrra og kostuðu um 38 milljónir króna, en gert er ráð fyrir 40 milljónum króna að auki á fjárhagsáætlun þessa árs vegna uppsetningar og tenginga. Eftir að ljósin voru keypt uppgötvaðist að smíða þurfti festingar til að setja þau upp og er sú vinna í gangi hjá Stál X verktökum. SV1 rafverktakar munu sjá um að setja upp nýju ljósin ásamt tengingum, endurnýjun á stýringu og niðurtekt eldri ljósanna.
Lýsingin í Boganum var orðin afar slöpp eins og notendur kannast við og má fullyrða að ljósmyndarar sem þangað mæta á knattspyrnuleiki eða aðra viðburði muni fagna ljósaskiptunum. Notendur bíða þó sennilega jafn spenntir eða spenntari eftir frekari viðhalds- og endurnýjunarvinnu í Boganum, s.s. endurnýjun á gervigrasinu og fleiru, sem er þó ekki á dagskrá í þessari lotu.
Lekaviðgerðir einnig í gangi
Vinna hefur einnig verið í gangi að undanförnu ofan á Boganum, en þær viðgerðir tengjast leka og má álykta sem svo að skynsamlegt hafi verið að fara í þá viðgerð áður en kemur að ljósaskiptunum. Aðgerðirnar núna felast meðal annars í því að herða festingar á þakplötum. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem þakið hefur lekið. Í fyrravetur var einangrun undir þakinu farin að losna og slúta niður á nokkrum stöðum.

Unnið að þakviðgerðum á Boganum. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Svona leit einangrun í þaki Bogans út á nokkrum stöðum í janúar í fyrra. Myndir: Haraldur Ingólfsson.
Boganum verður lokað frá og með 1. september, eins og áður sagði, og verður öll umferð um hann og notkun bönnuð á meðan á verkinu stendur. Reikna má með að ljósaskiptin standi eitthvað fram í október.