Fréttir
Ljósaganga – Gengið gegn ofbeldi í dag
25.11.2025 kl. 10:00
Ljósaganga gegn ofbeldi verður gengin frá Ráðhústorgi að Amtsbókasafninu í dag. Lagt verður upp frá Ráðhústorginu kl. 16:30. Á Amtsbókasafninu flytur Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, stutt erindi.
Ljósagangan er gengin í tilefni 16 daga átaks gegn kynbundnu ofbeldi – #16 dagar. Alþjóðlegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi má rekja aftur til ársins 1991. Í tilkynningu um viðburðinn á Facebook segir að tímabil átaksins tengi á táknrænan hátt saman dagana 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og 10. desember sem er alþjóðlegi mannréttindadagurinn. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls ofbeldis og í ár er sjónum beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum.
Að göngunni standa Soroptimistaklúbbur Akureyrar, Femínistafélag MA, Zontaklúbbur Akureyrar og Zontaklúbburinn Þórunn hyrna. Félögin sem að göngunni standa hvetja alla til að mæta og ganga saman gegn ofbeldi.