Fréttir
Listilega vel máluð gangbraut í Listagilinu
18.06.2025 kl. 17:00

Mynd af vef Akureyrarbæjar
Um helgina var máluð þrívíddargangbraut í um miðbik Listagilsins, á móts við Listasafnið. Greint er frá því á vef Akureyrarbæjar, þar sem þessar myndir er að finna. „Sambærileg gangbraut hefur áður verið máluð á Ísafirði og hlotið talsverða athygli,“ segir þar.
Það var Gautur Ívar Halldórsson sem hafði umsjón með verkinu fyrir hönd Akureyrarbæjar en Gautur rekur fyrirækið Vegamálun GÍH á Ísafirði. Fyrirtækið sérhæfir sig í yfirborðsmerkingum um land allt.

