Fara í efni
Fréttir

Límmiðabylgjan hefur ratað til Akureyrar

Það hefur færst í vöxt að listafólk, ferðalangar og aðrir skilji eftir límmiða á opinberum flötum sem eins konar persónulegt spor eða minningu um heimsókn sína. Þetta á ekki bara við um Akureyri heldur er þetta alþjóðlegt fyrirbæri.

Ferðamenn virðast í auknum mæli skilja eftir límmiða á ljósastaurum, skiltum og öðrum flötum í miðbæ Akureyrar. Fyrir suma virðist þetta vera leið til að skilja eftir „merki“ um ferðalagið en fyrir aðra hluti af alþjóðlegri götulista- og ferðamenningu sem hefur verið áberandi í borgum víða um heim.

Guðríður Erla Friðriksdóttir, sviðsstjóri Umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar, segir að bærinn hafi ekki mótað sér sérstaka stefnu gagnvart límmiðunum og að þeir hafi ekki valdið sérstökum áhyggjum hingað til. Að hennar mati geti sumir þeirra jafnvel verið skemmtilegir og áhugaverðir, þó að hún bendi á að ef umfangið ykist verulega þyrfti bæjarfélagið að meta hvort grípa þyrfti til aðgerða.

Hún segir að meiri áhersla hafi verið lögð á að bregðast við veggjakroti, sem hafi kallað á hreinsun og inngrip, en límmiðarnir hafi enn sem komið er ekki verið taldir sambærilegt vandamál. Ef þróunin færi hins vegar að setja verulegan svip á bæinn yrði staðan endurmetin.

Hér fyrir neðan má sjá nokkur dæmi af límmiðum í miðbænum og dæmi nú hver fyrir sig hvort þetta sé lýti eða skemmtileg upplifun.