Fara í efni
Fréttir

Lilja kjörin formaður – Ingibjörg fékk 42%

Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kjörin formaður Framsóknarflokksins. Hún fékk 352 atkvæði eða 58% greiddra atkvæða á flokksþingi Framsóknar sem fer fram um helgina í Reykjavík. Niðurstaðan var kynnt rétt í þessu.

Tvær voru í kjöri, Lilja og Ingibjörg Isaksen þingmaður flokksins í Norðausturkjördæmi og formaður þingflokksins. Ingibjörg fékk 254 atkvæði, 42%.

Lilja Dögg hefur verið varaformaður Framsóknar síðan 2016. Hún var alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður frá 2016 til 2024 en náði ekki kjöri í síðustu kosningum.

Lilja var utanríkisráðherra 2016–2017, mennta- og menningarmálaráðherra 2017–2021, ferðamála-, viðskipta- og menningarmálaráðherra 2021–2022, menningar- og viðskiptaráðherra 2022–2024.

Sigurður Ingi Jóhannsson hefur verið formaður flokksins síðan haustið 2016 en gaf ekki kost á sér áfram.