Fara í efni
Fréttir

Leituðu kajakræðara, sáu einungis hvali

Andarnefjur á Pollinum fyrir nokkrum árum. Hugsanlega voru þær að leik í firðinum í dag, eða einhverjir ættingjar þeirra. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Leitað var á þriðju klukkustund upp úr hádegi í dag að kajakræðara sem talinn var hafa lent í vandræðum í sjónum á milli Akureyrar og Svalbarðsstrandar, en enginn fannst. Álitið er að um missýn hafi verið að ræða, mögulega að hvalur hafi verið við yfirborð sjávar því leitarmenn sáu töluvert af hval.

Mikill fjöldi leitarmanna var ræstur út og aðgerðarstjórn virkjuð. Um var að ræða „fullt útkall“ eins og varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra orðaði það. Félagar í björgunarsveitinni Súlum leituðu á báti, sömuleiðis slökkviliðsmenn og starfsmenn Akureyrarhafnar á hafnsögubátum. Þá notaði lögreglan dróna sem tók bæði hitamyndir og kvikmynd. Björgunarsveitarmenn frá Siglufirði, Dalvík, Grenivík og Svalbarðsströnd voru líka kallaðir út en eftir að leit hafði staðið yfir í rúma tvo tíma og ekkert sést nema töluvert af hval að leik eða hangandi upp við yfirborðið, þótti einsýnt hvers kyns var. Hvalur sást bæði á Pollinum og utar, en tilkynnt var að meintur kajakræðari hefði verið í sjónum austur af Slippnum, nálægt Svalbarðsströnd. 

Varðstjóri hjá lögreglunni sagði að í raun hefði útkallið verið góð æfing og leitin afar nákvæm. Aðgerðir stóðu alls í þrjár klukkustundir og var hann einkar ánægður með „æfinguna“ því allir hefðu brugðist fljótt við og allt gengið vel.