Fara í efni
Fréttir

Leita samstarfsaðila fyrir andlitslyftingu

Skjáskot af forsíðunni á Akureyri.is.

Í bígerð er að gera nokkurs konar andlitslyftingu á vef Akureyrarbæjar og hefur bærinn auglýst eftir áhugasömum til að taka þátt í markaðskönnun vegna hönnunar og smíði nýrrar vefsíðu sveitarfélagsins, Akureyri.is.

Tilgangurinn er að finna samstarfsaðila til að hanna og smíða nútímalegan vef sem aðgengilegur er í öllum tækjum, að því er fram kemur í frétt á vef bæjarins. Leitað er að samstarfsaðilum sem meðal annars hafa reynslu af því að smíða opinberan vef, hafa sterkt hönnunarteymi innanborðs, hafa smíðað vef sem skarar fram úr og vakið athygli á undanförnum þremur árum og hafa reynslu af því að gera hönnunarkerfi fyrir vefi.

Frestur til að senda inn yfirlýsingu með rökstuðningi um hæfni er til og með 12. febrúar, en að því búnu verður allt að fimm mögulegum samstarfsaðilum boðið að kynna sig nánar og nálgun þeirra, ásamt því að senda inn tilboð í verkið.