Fara í efni
Fréttir

Leigja Akureyringum bráðlega rafskutlur

Rafhlaupahjól njóta mikilla vinsælda í Reykjavík. Ljósmynd af Facebook-síðu Hopp.

Akureyrarbær og fyrirtækið Hopp hafa gert þjónustusamning um stöðvalausa rafskútuleigu á Akureyri. Stefnt er að því að 65 rafskútur verði teknar í notkun í bænum í apríl. Hjól af þessu tagi njóta töluverðra vinsælda í Reykjavík, einkum í miðborginni og þar í grennd; fólk grípur laust hjól, rúllar um bæinn og skilur farartækið svo eftir þegar komið er á leiðarenda.

„Rafskútur, öðru nafni rafhlaupahjól, hafa rutt sér hratt til rúms á höfuðborgarsvæðinu og hafa nokkrar hjólaleigur hafið þar starfsemi að undanförnu. Þetta er hluti af alþjóðlegri þróun í þéttbýli þar sem sífellt fleiri kjósa að deila samgöngutækjum og aukin áhersla er lögð á örflæði, samgöngur þar sem lítil rafvædd farartæki eru notuð til að komast stuttar vegalengdir á fljótlegan og einfaldan hátt,“ segir á heimasíðu Akureyrarbæjar.

Fyrirkomulag rafskútuleigunnar á Akureyri verður sambærilegt og þekkist í Reykjavík. Fólk notar smáforrit (app) til að finna næsta lausa hjól, aflæsir því, leggur af stað og skilar því svo aftur á svæðum þar sem það er heimilt. Fyrir þjónustuna greiðir notandi upphafsgjald og mínútugjald samkvæmt verðskrá fyrirtækisins. Nánari upplýsingar um þjónustuna og fyrirkomulagið á Akureyri verða birtar þegar nær dregur, en eins og áður sagði er stefnt að því að fyrstu hjólin verði komin í umferð fyrir lok apríl.“

Markmið Akureyrarbæjar með þessu er að styrkja net almenningssamgangna og auðvelda íbúum og gestum að komast ferða sinna innanbæjar með umhverfisvænum hætti. Aðrar aðgerðir sveitarfélagsins í þessa veru, sem unnið er að um þessar mundir, eru til dæmis endurskoðun á leiðaneti Strætisvagna Akureyrar og uppbygging á aðlaðandi og skilvirku stígakerfi samkvæmt nýju skipulagi, að því er kemur fram á heimasíðu bæjarins.

Forsvarsmenn fyrirtækisins óskuðu eftir viðræðum við bæinn um opnun rafskútuleigunnar sem skipulagsráð samþykkti í október síðastliðnum. Með samningnum, sem nú hefur verið undirritaður, heimilar sveitarfélagið þessa starfsemi og samþykkir að vinna að því ásamt fyrirtækinu að áhrif þjónustunnar verði sem jákvæðust, segir á heimasíðu Akureyrarbæjar.