Fara í efni
Fréttir

Laxdalshús: menning, matur og ferðaþjónusta

Magnús Jón Magnússon og Jónína Björg Helgadóttir, eigendur Majó ehf., og Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri fyrir utan Laxalshús í gær. Mynd af vef Akureyrarbæjar.

Jónína Björg Helgadóttir, myndlistarkona, og Magnús Jón Magnússon, eigendur Majó ehf., hafa tekið Laxdalshús á leigu af Akureyrarbæ. Jónína og Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, undirrituðu í gær samning til fjögurra ára.

Samningurinn gerir ráð fyrir að í húsinu verði listastarfsemi, veitingarekstur og ferðaþjónusta. Þar verður einnig vinnustofa Jónínu Bjargar sem reglulega verður opin almenningi.

Á efri hæð hússins verður gestalistamönnum boðin vinnuaðstaða til skemmri tíma í senn. Ferðaþjónustan felst í sögugöngum um bæinn sem hefjast og enda við Laxdalshús og tengjast matarhefðum. Ekki er hugmyndin að reka eiginlegan veitingastað í húsinu með reglulegum opnunartíma heldur munu hópar geta bókað málsverði, einkasamkomur og námskeið.

Ásthildur bæjarstjóri sagði við þetta tilefni að afar ánægjulegt væri að áfram verði menningarleg starfsemi í Laxdalshúsi, elsta húsi bæjarins, og að það haldist skemmtilega í hendur við að Sigurhæðir vakni nú einnig aftur til lífsins með margvíslegri menningarstarfsemi og viðburðahaldi.

„Fyrir okkur er það mikill heiður að taka við þessu sögufræga húsi og við hlökkum til að hafa hér eitthvert líf í tuskunum,“ sagði Jónína Björg að lokinni undirritun samningsins, að því er segir á vef bæjarins.

Laxdalshús er friðað skv. lögum um menningarminjar og starfsemin skal að taka mið af því, segir á vef Akureyrarbæjar.