Laun kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra fryst?
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í gær var lögð fram tillaga um tímabundna frystingu launa kjörinna fulltrúa og bæjarstjóra, þannig að vísitöluhækkun sem myndi koma til framkvæmda um næstu mánamót falli niður. Tillagan var ekki afgreidd á fundinum en formanni og varaformanni bæjarráðs falið að vinna málið áfram.
Samkvæmt reglum um launakjör bæjarfulltrúa og nefndarmanna nema launakjörin skilgreindu prósentuhlutfalli af tiltekinni viðmiðunarfjárhæð. Í reglunum kemur fram að sú viðmiðunarfjárhæð taki breytingum skv. launavísitölu 1. janúar og 1. júlí ár hvert og þar með breytist laun kjörinna fulltrúa.
Í ráðningarsamningi Berglindar Óskar Guðmundsdóttur, nýráðins bæjarstjóra, er tiltekið að laun hennar taki breytingum skv. þessum reglum um launakjör kjörinna fulltrúa og munu laun hennar því einnig verða fryst, verði tillagan samþykkt. Í ráðningarsamningi Ásthildar Sturludóttur, forvera Berglindar Óskar í starfi, var hins vegar ákvæði um að launin breyttust skv. launavísitölu í janúar og júní ár hvert.