Fara í efni
Fréttir

Langflest börn með pláss á leikskóla

Ljósmynd: Þórgnýr Dýrfjörð

Allar umsóknir um leikskólapláss barna á Akureyri, sem bárust áður en umsóknarfrestur rann út, hafa verið afgreiddar og nánast öll börn hafa fengið leikskólapláss fyrir komandi vetur. Aðeins fáein fædd 2021 eða fyrr eru nú á biðlista eftir plássi. Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins í morgun.

Sesselja Sigurðardóttir leikskólaráðgjafi hjá Akureyrarbæ segir að helstu ástæður þess að ekki hefur ennþá verið hægt að verða við öllum leikskólaumsóknum sé sú að fleiri barnafjölskyldur hafi nýlega flutt til bæjarins en í burtu.

„Venjulega helst fjöldi brottfluttra og aðfluttra barna nokkurn veginn í hendur en núna eru aðflutt leikskólabörn heldur fleiri en þau sem fluttu í burtu. Þessi fjölgun barnafólks í bænum er að sjálfsögðu mjög ánægjuleg og vonandi tekst okkur innan tíðar að finna farsæla lausn fyrir þessi fáu börn sem enn hafa ekki fengið pláss. Fyrir foreldra barna yngri en 12 mánaða, léttir það einnig stöðuna að nú er dagforeldrum að fjölga aftur og verið er að vinna í umsóknum um ný daggæsluleyfi,“ segir Sesselja Sigurðardóttir.