Fara í efni
Fréttir

Langar þig að eignast gömlu Nökkvahúsin?

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar hefur auglýst til sölu gömlu húsin tvö við Hoepfner sem siglingaklúbburinn Nökkvi hafði til umráða um árabil. Annað er kallað aðstöðuhúsnæði, um 40 fermetrar, byggt 1994, hitt bátaskýli, 68 fermetrar, byggt 2000.

Nökkvi tók í notkun nýtt, stórglæsilegt hús á síðasta ári, skammt sunnan við gömlu húsin og nú skulu þau víkja. Tilboðum í húsin er hægt að skila til klukkan 11.00 miðvikudag 8. júní, þau á að senda á netfangið umsarekstur@akureyri.is að því er segir í tilkynningu á vef bæjarins.  Þar er tekið fram að umhverfis- og mannvirkjasvið áskilji sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.