Fara í efni
Fréttir

Landsfundur Vinstri grænna hefst í Hofi í dag

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG og forsætisráðherra, með Vlodomyr Zelenzky í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu í vikunni. Ljósmynd: Stjórnarráðið

Um 200 manns sækja landsfund Vinstri grænna sem verður í menningarhúsinu Hofi á Akureyri um helgina. Fundurinn hefst í dag kl. 17.00  með setningarhátíð og hálftíma síðar hefst ræða Katrínar Jakobsdóttur, formanns flokksins og forsætisráðherra.

Ræðu Katrínar verður send út beint - smellið hér til að sjá og heyra

Ályktun um svæðisborgina Akureyri

Á meðal ályktana sem lagðar verða fyrir fundinn er þessi frá stjórn VG, um svæðisborgina Akureyri:

„Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, haldinn á Akureyri dagana 17. – 19. mars 2023, fagnar framkomnum tillögum starfshóps um svæðisbundið hlutverk Akureyrar sem þéttbýliskjarna á landsbyggðinni. Þær kveða á um að Akureyri verði í byggðastefnu stjórnvalda flokkuð sem svæðisborg með skilgreinda ábyrgð og skyldur sem þjóni íbúum og atvinnulífi í landshlutanum og eftir atvikum á landsvísu. Fundurinn hvetur þingmenn hreyfingarinnar til að leggjast á árarnar um að styrkja innviði á borð við samgöngur, heilbrigðisþjónustu, menningarstarfsemi og menntakerfi á Akureyri til þess að fólk á Norður- og Austurlandi og eftir atvikum víðar geti sótt þangað þá þjónustu sem ekki er hægt að halda úti um allt land. Með því móti geta svæði utan höfuðborgarsvæðisins vaxið og dafnað með eðlilegum hætti og dregið úr því ójafnvægi sem orðið hefur í þróun byggðar á Íslandi.“

Jana Salóme í framboði

Kosið verður til stjórnar VG á sunnudaginn. Einn Akureyringur sækist eftir sæti í stjórn; Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi, er í framboði til embættis ritara flokksins.