Fara í efni
Fréttir

Lækka leigu um allt að 35 þúsund á mánuði

Íbúðafélagið Bjarg, sem meðal annars á 31 íbúð á Akureyri, hefur ákveðið að lækka húsaleigu um allt að 35.000 krónur á mánuði. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Bjarg er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. „Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu,“ segir á heimasíðu félagsins.

Þar segir að skrifað hafi verið undir viljayfirlýsingu um fjármögnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) til Bjargs. „Í kjölfarið hyggst Bjarg lækka leigu stórs hóps leigjenda sinna frá og með 1. september næstkomandi. Lækkunin nemur allt að 35.000 kr. á mánuði.

Um er að ræða hagstæða nýja langtímafjármögnun á lánum félagsins hjá HMS í kjölfar þess að niðurstaða náðist í ríkisstjórn um framtíðarfyrirkomulag lánveitinga stofnunarinnar á samfélagslegum forsendum til byggingar og kaupa á íbúðum.“

Björn Traustason, framkvæmdarstjóri Bjargs sagði af þessu tilefni að ástæða lækkuninarinnar væru bætt kjör á lánsfé og að allir leigjendur Bjargs fái lækkun. „Svona virkar óhagnaðardrifið leigufélag eins og okkar, að ef okkar kostnaður lækkar þá njóta leigutakarnir þess óháð því hvaða upphæð kemur fram í leigusamningnum.“