Fara í efni
Fréttir

Kynna alþjóðatengingu á fjölskyldudegi

Icelandair stendur fyrir fjölskyldudegi á Glerártorgi næstkomandi laugardag, 26. ágúst, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Þar á meðal verða tónlistaratriði, húllasýning, andlitsmálun og veitingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, þar sem segir einnig: „Auk þess verður glæsilegt lukkuhjól sem færir heppnum þátttakendum veglega vinninga og ratleikur þar sem hægt er að vinna flugferð fyrir fjóra til Barcelona.“

Viðburðurinn á Facebook

Fram kemur í tilkynningu að þau sem skrá sig á viðburðinn á Facebook fara í pott og eiga möguleika á að vinna 25 þúsund króna gjafabréf frá Icelandair.

Flug milli Akureyrar og Keflavíkur hefst í október

„Á fjölskyldudeginum verður einnig sérstök kynning á alþjóðatengingu Icelandair á milli Akureyrar og Keflavíkur en boðið verður upp á hana á tímabilinu 15. október til 30. nóvember,“ segir í tilkynningunni. „Á tímabilinu verður flogið þrisvar sinnum í viku frá Akureyri til Keflavíkur, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum klukkan 5:50 að morgni og þrisvar sinnum í viku frá Keflavík til Akureyrar, á miðvikudögum klukkan 21:20 og föstudögum og sunnudögum klukkan 17:15. Með fluginu verður auðvelt að tengja við fjölda áfangastaða Icelandair í Evrópu.“

Af stað á svipuðum tíma og íbúar í 101

„Við leggjum mikla áherslu á góð tengsl við viðskiptavini okkar og hafa fjölskyldudagar okkar reynst bæði góð og skemmtileg leið til þess,“ segir Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og markaðsmála hjá Icelandair í tilkynningunni. „Nú styttist í að við byrjum með alþjóðatengingu á milli Akureyrar og Keflavíkur með mjög góðum tengingum fyrir Norðlendinga við flugáætlun okkar frá Keflavíkurflugvelli. Reyndar svo góða að Akureyringar geta lagt af stað heiman frá sér á svipuðum tíma og þeir sem búa í 101 Reykjavík. Við munum meðal annars kynna alþjóðatenginguna okkar en megináherslan verður á að skemmta sér saman. Við erum mjög spennt fyrir því að hitta sem flesta á laugardaginn og hvetjum Norðlendinga til að líta við og taka þátt í dagskránni með okkur.“