Fara í efni
Fréttir

Vilja að saga Hjalta Snæs hjálpi öðrum

Samverustund verður í Freyvangi í Eyjafjarðarsveit í kvöld – Afmælis styrktarkvöld Hjalta Snæs eins og stundin er nefnd á Facebook – þar sem foreldrar Hjalta Snæs Árnasonar bjóði fólki að mæta. Hjalti Snær gekk í sjóinn við Kirkjusand í Reykjavík fyrir nokkrum vikum og hefur ekki fundist.

Hjalti Snær, sem hafði verið veikur í á annað ár, hefði orðið 23 ára í dag og af því til­efni ætlar fjöl­skylda hans að hrinda af stað styrkt­ar­verk­efni.

Draum­ur fjöl­skyld­unn­ar er að hægt verði að setja á stofn ein­hvers kon­ar sjálf­bært sam­fé­lag sem væri fyr­ir­byggj­andi fyr­ir ungt fólk í spor­um Hjalta Snæs, að því er fram kom í grein á mbl.is í gær. Fyrir „fólk sem hafi sterka teng­ingu við nátt­úr­una og hefði meiri mögu­leika á end­ur­hæf­ingu í slíku um­hverfi en venju­legu stofn­ana- og spít­alaum­hverfi. Það hefði verið úrræði sem hefði passað Hjalta Snæ vel. Þau vilja að saga hans hjálpi öðrum í hans spor­um.“

Gerður Ósk, móðir Hjalta, sagði í sam­tali við mbl.is að á Ak­ur­eyri sé hvergi að fá þjón­ustu fyr­ir fólk í spor­um Hjalta Snæs. Eng­inn viti hvað eigi að gera fyr­ir fólk í hans spor­um og eina svarið séu lyf. Eng­in end­ur­hæf­ing sé á Ak­ur­eyri og ekk­ert sem taki við eft­ir að fólk er út­skrifað af geðdeild Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri. Gerður seg­ir mjög al­gengt að börn í stöðu Hjalta Snæs fari í geðrof um tví­tugt og að ein­hverfa skar­ist mikið við geðklofa. Sú varð ein­mitt raun­in með Hjalta Snæ, sem hef­ur bar­ist við sín veik­indi und­an­far­in tvö ár, sér­stak­lega.

Fögnum honum

Á Facebook síðu viðburðarins í Freyvangi segir meðal annars: „Hann hefur aldrei viljað veislur en okkur hefur alltaf langað að fagna honum á einhvern hátt. Það verður opið svið þannig að ef einhver vill gera eitthvað þá er það velkomið. Allt samt í anda Hjalta Snæs.“

Þar segir einnig: „Fögnum honum eins og við þekktum hann áður en veikindin herjuðu á hann. Nokkrir vina okkar munu vera með varning til sölu þar sem ágóðinn mun renna til sjóðs/verkefnis sem verður eyrna merktur úrræði sem er nauðsynlegt fyrir ungt fólk eins og Hjalta hér á Norðurlandi. Nokkrar hugmyndir komnar en þetta mun skýrast með tímanum. Ef þið viljið aðstoða okkur með að gera þessa kvöld stund þá er hugmynd að vera með Pálínu boð. Munum enda kvöldið með því að sleppa fallegum kerta luktum upp í loftið.“

Samkoman í Freyvangi hefst klukkan 20.00.

Opnaður hef­ur verið styrkt­ar­reikn­ing­ur, sem er skráður að sinni á Gerði Ósk, móður Hjalta:

  • Reikn­ings­núm­er: 0526-14-201214
  • Kennitala: 050578-5779