Fara í efni
Fréttir

Kveðjumessa séra Svavars Alfreðs

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Kveðjumessa séra Svavars Alfreðs Jónssonar verður í Akureyrarkirkju í dag kl. 14.00. Séra Svavar hefur verið  sóknarprestur í Akureyrarkirkju í 23 ár en lét af því starfi um áramót. Hann færir sig um set og verður prestur á Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Séra Hildur Eir Bolladóttir og séra Jóhanna Gísladóttir þjóna fyrir altari en séra Svavar Alfreð prédikar. Kór Akureyrarkirkju og Eldri barnakór Akureyrarkirkju syngja. Stjórnendur og organistar eru Eyþór Ingi Jónsson, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Þorvaldur Örn Davíðsson.

Að messu lokinni verður boðið til kaffisamsætis í Safnaðarheimili kirkjunnar.