Fara í efni
Fréttir

Kröfulýsingar hluti af gæðaeftirliti

Myndin var tekin við undirritunina. Í aftari röð frá vinstri eru forstöðumenn í þjónustu við fatlað fólk; Ragnheiður Júlíusdóttir, Kristinn Már Torfason, Guðrún Guðmundsdóttir, Arnar Eyfjörð, Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir og Hlynur Már Erlingsson. Á myndina vantar Örnu Jakobsdóttur, Ólaf Má Torfason, Sísý Malmquist og Önnu Einarsdóttur. Sitjandi eru Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri á velferðarsviði, og Guðrún Sigurðardóttir sviðsstjóri. Mynd: Akureyri.is

Velferðarsvið Akureyrarbæjar hefur tekið upp kröfulýsingar í þjónustu við fatlað fólk. Kröfulýsing skilgreinir hlutverk og meginmarkmið þjónustunnar, rekstur og skipulag. Þjónusta við einstaklinga er skilgreind, að gera skuli einstaklingsbundnar þjónustuáætlanir og annað sem snertir einstaklinga með beinum hætti, til dæmis þjónustuöryggi. Frá þessu er greint á vef Akureyrarbæjar.

Hlutverk kröfulýsinganna er að skilgreina lágmarkskröfur til þjónustunnar og eru þær lagðar til grundvallar þegar velferðarsvið eða fulltrúar þess taka út starfsemina. Þær eru þannig hluti af gæðaeftirliti í málaflokknum. Sveitarfélagið veitir fötluðu fólki umfangsmikla þjónustu því að kostnaðarlausu og hefur að auki samninga um ráðgjafarþjónustu við nágrannasveitarfélög. Kröfulýsingarnar voru undirritaðar á velferðarsviði Akureyrarbæjar í vikunni.

Forsaga þess að kröfulýsingarnar urðu til og hafa nú verið undirritaðar er að á árinu 2022 var ákveðið að koma á fót innra eftirliti með þjónustu Akureyrarbæjar í málaflokki fatlaðs fólks. Til þessa verkefnis var ráðin Ellý Alda Þorsteinsdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Í framhaldi af þeirri vinnu var ákveðið að setja skriflega fram kröfulýsingar fyrir alla þjónustu sem velferðarsvið veitir í málaflokknum og voru þær unnar í samvinnu við forstöðumenn. Kröfulýsing er sett fram fyrir hverja starfsstöð, en um er að ræða heimili, skammtímadvalarstaði og vinnu- og virknistaði.