Fara í efni
Fréttir

„Kröftug uppbygging og bjart framundan“

Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti Framsóknarflokksins í bæjarstjórn Akureyrar og formaður bæjarráðs, segir umræðu um lóðaskort á Akureyri ósanngjarna.

Verktakar hafa lýst yfir óánægju vegna lóðaskorts í bæjarfélaginu, einkum Sigurður Sigurðsson, eigandi SS Byggis. Örfáar lóðir eru lausar núna og Sigurður hefur bent á að byggingaverktaki hefjist ekki handa á vettvangi um leið og lóð sé úthlutað; frá þeim tíma geti liðið hálft ár eða jafnvel heilt, áður en framkvæmdir hefjist. Sigurður sagði í samtali við Fréttablaðið í vikunni að ástandið hefði aldrei verið jafn slæmt á þeim fjórum áratugum sem hann hefði starfrækt fyrirtækið.

Guðmundur Baldvin setti færslu á Facebook – sem hann gaf góðfúslegt leyfi til að birta – þar sem hann sagði rétt að upplýsa um stöðu mála í bænum, vegna „mikillar umræðu um íbúðaskort á Akureyri og vandræði verktaka á að fá lóðir.“

Guðmundur segir: „Eftir nokkur rýr ár í kjölfar hrunsins hafa íbúðabyggingar farið á gott skrið á liðnum árum og frá árinu 2015 hafa að meðaltali 170 íbúðir verið fullkláraðar árlega.

Nú liggur fyrir að ríflega 200 íbúðir klárast í Hagahverfi á þessu ári og búast má við að framkvæmdir hefjist við um 180 íbúðir í Hagahverfi á árinu.

Þá hefur 89 íbúðum verið úthlutað annars staðar í bænum sem fara vonandi í framkvæmdir á þessu ári, þar á meðal spennandi uppbygging við Austurbrú.

Þá er ótalið að í haust koma til úthlutunar lóðir í Holtahverfi þar sem um er að ræða tæplega 300 íbúðir þar sem framkvæmdir gætu hafist á árinu 2022.

Við gætum því séð yfir 500 íbúðir koma inn í nýjar framkvæmdir á árunum 2021-2023 auk þeirra 200 íbúða sem fullklárast á þessu ári.

Í kjölfarið verður svo komið skipulag fyrir Kollugerðishaga en þar verður framtíðaruppbygging og gert ráð fyrir ríflega 700 íbúðum í fyrri áfanga þess skipulags en um 1300 íbúðum alls.

Það er því óhætt að segja að uppbygging íbúða í bænum hafi verið afar kröftug á síðustu árum og bjart sé framundan,“ segir Guðmundur Baldvin.