Fara í efni
Fréttir

Krabbameinsfélagið gaf SAK verkjadýnur

Hafdís Sif Hafþórsdóttir, meðstjórnandi KAON og starfsmaður lyflækningadeildar SAk, Maron Björnsson, meðstjórnandi KAON, Þóra Ester Bragadóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar, Sólveig Hulda Valgeirsdóttir aðstoðarforstöðuhjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild, og Þórunn Sif Héðinsdóttir, ritari KAON. Mynd af vef SAk.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis (KAON) kom færandi hendi á dögunum og afhenti lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri svokallaðar verkjadýnur. Þær eru sérstaklega hannaðar fyrir sjúklinga með verki en reynast einnig vel sem legusáravörn. Frá þessu er sagt á vef SAk.

„Við höfum hingað til þurft að forgangsraða þeim sem þurfa hvað mest á þessum dýnum að halda þar sem við áttum ekki nógu margar – núna verður þetta auðveldara fyrir okkur,“ segir Ester Þóra Bragadóttir, deildarstjóri lyflækningadeildar á vef sjúkrahússins.
 
Krabbameinsfélagi Akureyrar og nágrennis er mikið í mun að styðja við krabbameinssjúklinga og í sameiningu við starfsfólk SAk var það lendingin að verkjadýnurnar væru mest aðkallandi. Enn fremur hefur félagið hug á því að styðja við líknarstarf á sjúkrahúsinu. Fyrir um ári síðan styrkti KAON einnig almenna göngudeild SAk með kaupum á skjá á biðstofu og sýnir efni sem er gagnlegt fyrir krabbameinssjúka og aðstandendur þeirra.
 

Þórunn Sif Héðinsdóttir, ritari KAON, Hafdís Sif Hafþórsdóttir, meðstjórnandi KAON og starfsmaður lyflækningadeildar, Sigrún Rúnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur á almennu göngudeildinni, og Maron Björnsson, meðstjórnandi KAON. Mynd af vef SAk.