Krabbameinsfélagið fagnar stórafmæli í Hofi
Krabbameinsfélag Íslands fagnar 75 ára afmæli í ár og á morgun býður félagið til afmælisveislu af því tilefni í Hofi. Veislan hefst klukkan 17.00.
„Allt starf Krabbameinsfélagsins miðar að því að fækka þeim sem fá krabbamein, fjölga þeim sem læknast eða lifa með krabbameini og að líf og lífsgæði þeirra og aðstandenda þeirra séu sem best,“ segir í tilkynningu frá félaginu.
„Fáir vita að Krabbameinsfélagið er alfarið rekið fyrir sjálfsaflafé. Starfsemin er möguleg vegna stuðnings frá einstaklingum og fyrirtækjum í landinu. Þar skipta Mottumars og Bleiku slaufan miklu máli, en ekki síst frá stór hópur dásamlegra Velunnara sem styðja okkur mánaðarlega,“ segir i tilkynningunni.
- Áhugasamir eru beðnir um að skrá sig í veisluna – smellið hér til þess
„Við hlökkum mikið til að fá að þakka öllu hinu góða stuðningsfólki Krabbameinsfélagsins fyrir stuðninginn. Það að fólk láti sig málin varða og sýni stuðninginn í verki skiptir öllu máli og gerir alla starfsemi Krabbameinsfélagsins mögulega, hvort sem um er að ræða forvarnir, vísindastarf eða stuðning,“ segir Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Stórir áfangar hafa náðst en áskoranirnar eru líka margar fram á veginn. Okkar öfluga stuðningsfólk á allt gott skilið og það verður gaman að hitta það í heimabyggð.“

Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands.
- Krabbameinsfélagið heldur upp á þessi merku tímamót með afmælisburðum á fjórum stöðum á landinu. Tvær veislur eru að baki, í Reykjanesbæ og Selfossi, á morgun er veisla á Akureyri sem fyrr segir og hina síðasta verður á Fáskrúðsfirði í næstu viku.
- Félagsmönnum allra aðildarfélaga Krabbameinsfélags Íslands er boðið til veislu og í boðskorti er tekið fram að velkomið sé að taka með sér gest.
- Í boðskorti til félagsmanna segir: „Hinn landskunni tónlistarmaður Jón Ólafsson mun stýra veislunni og skemmta með liðsinni söngkonunnar ljúfu Hildar Völu Einarsdóttur. Saman munum við njóta góðra veitinga, gleðjast í hópi góðra vina og fagna þeim árangri sem náðst hefur í gegnum árin með þínum dýrmæta stuðningi.“