Fara í efni
Fréttir

Kosning á fugli ársins er hafin

Hrossagaukur er einn sjö fugla sem hægt er að kjósa um. Ljósmynd: Gunnlaugur Sigurjónsson

Kosning um Fugl ársins er hafin og stendur til næsta sunnudags, 12. september. Niðurstaða kosningarinnar verður tilkynnt á Degi íslenskrar náttúru, 16. september.

„Þessir keppa um að verma hæstu fuglaþúfuna 2022,“ segir í tilynningu:

  • Auðnutittlingur
  • Himbrimi
  • Hrafn
  • Hrossagaukur
  • Jaðrakan
  • Kría
  • Maríuerla

„Með kosningu á Fugli ársins vill Fuglavernd vekja athygli á málefnum fugla. Margar fuglategundir sækja hingað til lands vegna góðra og oft framúrskarandi aðstæðna til að ala unga sína en sumar þeirra eru í hættu vegna umsvifa mannsins, loftslagsbreytinga eða eyðingu búsvæða,“ segir í tilkynningu frá Fuglavernd. „Einstaka fuglar njóta ákveðinna óvinsælda vegna lífshátta sinna og veitir ekki af tækifæri til að reyna að bæta ímynd sína. Mest er þetta þó til gamans gert svona í lok sumars þegar horft er til baka yfir varptímabilið og á eftir farfuglunum okkar sem vonandi snúa á vetrarstöðvarnar með ungana sína og heim aftur næsta vor.“

Smellið hér til að kjósa.