Fara í efni
Fréttir

Kona lést á Akureyri í nótt – einn handtekinn

Grunur leikur á að andlát konu í íbúð fjölbýlishúss á Akureyri síðastliðna nótt hafi borið að með saknæmum hætti. Rannsókn lögreglu er á frumstigi.

Lögreglumönnum sem komu á vettvang var vísað á meðvitundarlausa konu, endurlífgunartilraunir hófust þegar í stað en báru ekki árangur og konan var úrskurðuð látin á staðnum.

Tilkynning sem birt var á Facebook síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra í hádeginu er svohljóðandi:

Klukkan 04:30 aðfaranótt mánudags var lögreglan á Norðurlandi eystra kölluð að fjölbýlishúsi á Akureyri.

Fyrstu lögreglumönnum sem komu á vettvang var vísað á meðvitundarlausa konu í íbúðinni og hófust endurlífgunartilraunir þegar í stað. Læknir og sjúkraflutningamenn komu einnig á vettvang en tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur og var konan úrskurðuð látin á vettvangi.
 
Grunur er um að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti og hefur lögreglan hafið rannsókn. Í íbúðinni var annar einstaklingur og var hann handtekinn í þágu rannsóknar málsins og nýtur réttarstöðu sakbornings. Krafa um gæsluvarðhald yfir honum verður lögð fram fyrir dómi í dag. Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Norðurlandi eystra, sem nýtur aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
 
Rannsókn málsins er á frumstigi og mikil vinna framundan. Vegna rannsóknarhagsmuna er ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.“