Fara í efni
Fréttir

Kona fannst eftir sjö tíma úti í frostinu

Kona á áttræðisaldri sem fór að heiman í gærkvöldi, líklega um miðnætti, fannst um klukkan sjö í morgun. Hún er alzheimer sjúklingur og ekki þótti líklegt að hún rataði heim aftur.

Lögreglan fékk tilkynningu um klukkan tvö í nótt þess efnis að konan hefði ekki skilað sér heim og hófst þá „strax eftirgrennslan eftir konunni [af] hálfu lögreglu og þá voru björgunarsveitir í Eyjafirði sem og Þingey ræstar út til aðstoðar og leitar og aðgerðastjórn virkjuð. Leitað var með skipulögðum hætti út frá heimili viðkomandi og var það gert með fjölda björgunarsveitarmanna, lögreglumanna, drónum og leitarhundi,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar.

„Þó að kalt hafi verið í veðri þá voru aðstæður til leitar ákjósanlegar og gátu leitarmenn m.a. fylgt líklegum sporum í snjónum frá heimili viðkomandi. Þrátt fyrir að hafa misst af þeim á nokkrum stöðum var það til þess að konan fannst heil á húfi laust fyrir kl. 07:00, þá enn á gangi og búin að ganga rúmlega 3 kílómetra frá heimili sínu.“

Konan var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri til aðhlynningar.

„Þökkum við öllum sem að þessu verkefni komu og sýnir það enn og aftur samtakamáttinn sem er til staðar þegar þörf er á,“ segir á Facebook síðu lögreglunnar.