Kiwanis: Öryggi barna í fyrirrúmi í 35 ár
Kiwanisklúbburinn Kaldbakur á Akureyri stendur þessa dagana í ströngu við að ljúka árlegu hjálmaverkefni sínu sem felst í því að öllum börnum í 1. bekk grunnskóla á svæðinu er færður vandaður reiðhjólahjálmur að gjöf. Klúbburinn hóf verkefnið árið 1991, fyrir 35 árum, og boðskapurinn breiddist heldur betur út; „það sem byrjaði sem staðbundið framtak er í dag glæsilegt landsverkefni allra Kiwanisklúbba á Íslandi“, segir í tilkynningu frá Kaldbaki.
Í ár afhendir Kiwanisklúbburinn Kaldbakur alls 286 hjálma á sínu svæði. Þorgeir Baldursson ljósmyndari fylgdist með þegar spenntir og glaðir krakkar í Giljaskóla tóku á móti þessum mikilvæga öryggisbúnaði.
„Það er dásamlegt að sjá gleðina í augum barnanna þegar þau fá nýja hjálminn sinn. Þetta er orðinn fastur og mikilvægur liður í forvarnarstarfi okkar,“ segir Hjalti Ásgeirsson, forseti Kaldbaks, og bætir við að öflugur stuðningur Eimskips sé forsenda þess að hægt sé að halda þessu mikilvæga verkefni gangandi ár eftir ár.
