Fréttir
Kertum fleytt – 81 ár frá sprengjunni í Hírósíma
06.08.2026 kl. 10:00
Rúnar Sigþórsson flytur erindi við Leirutjörn þegar kertum var fleytt fyrir ári síðan. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Kertum verður fleytt á Leirutjörn á Akureyri kl. 22 í kvöld til minningar um fórnarlömb kjarnorkuárása Bandaríkjanna á japönsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí í ágúst árið 1945. Í dag er 81 ár síðan fyrri sprengunni var varpað, á Hiroshima, en þeirri seinni varpað á Nagasakí 9. ágúst.
„Aldrei skal gleyma Hírósíma og Nagasakí,“ segir í tilkynningu frá Samstarfshópi um frið á Akureyri sem stendur að viðburðinum í kvöld. „En líka standa með fórnarlömbum yfirstandandi árásarstríða – og mótmæla sívaxandi helsprengjuvá,“ segir þar einnig.
Ákall flytur Hannes Sigurðsson lagerstarfsmaður og friðarsinni. Hluti af kertasölu rennur til Vonarbrúar.