Fara í efni
Fréttir

KEA leitar verkefna, eigið fé 8,9 milljarðar

Eigið fé KEA er um 8,9 milljarðar. Eftir sölu á eignarhlut í félaginu Tækifæri er umtalsvert fé laust til fjárfestinga og verður markvisst leitað nýrra verkefna á næstu misserum, að því er segir á heimasíðu KEA. Aðalfundur félagsins var haldinn í gær þar sem fram kom að hagnaður á síðasta ári var 721 milljón.

„Á aðalfundi KEA sem fram fór í gærkvöldi kom fram að afkoma KEA á síðasta ári var jákvæð um 721 milljón króna í samanburði við 326 milljónir króna árið áður. Hreinar fjárfestingatekjur námu um 942 milljónum króna og hækkuðu um rúmar 400 milljónir króna milli ára. Eigið fé er um 8,9 milljarðar og heildareignir um 9,2 milljarðar,“ segir á vef félagsins í morgun.

„Á árinu samþykkti félagið tilboð í 67% eignarhlut í dótturfélagið Tækifæri hf., en stærstu eignir þess félags eru Jarðböðin í Mývatnssveit og Sjóböðin á Húsavík. KEA á eftir söluna 5% í félaginu, sem nú heitir Norðurböð. Vegna heimsfaraldurs var velta nýrri verkefna minni en oft áður, en fyrir utan framangreind viðskipti var fjárfest í 15% hlut í Stefnu hugbúnaðarhúsi á Akureyri. Þá var áfram stutt við þau félög sem félagið hefur þegar fjárfest í sem og unnið að framþróun og eflingu annarra eignarhluta félagsins. Eftir sölu á eignarhlut í Tækifæri á félagið umtalsvert laust fé til fjárfestinga og verður markvisst leitað nýrra verkefna á næstu misserum.“