Fara í efni
Fréttir

KEA er lang stærsti eigandi N4 með 70% hlut

KEA er lang stærsti hluthafi í fjölmiðlafyrirtækinu N4 á Akureyri sem óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í dag. KEA á alls 70,8% hlut í fyrirtækinu, annars vegar í eigin nafni, hins vegar í nafni fjárfestingafélagsins Urða.

Eigendur N4 eru þessir:

  • Fjárfestingafélagið Urðir ehf (KEA) 61,6%
  • KEA 9,2%
  • Kaupfélag Skagfirðinga 9,2%
  • Höldur (Bílaleiga Akureyrar) 9,2%
  • Fjárfestingafélagið Vör (Síldarvinnslan í Neskaupstað 60% og Byggðastofnun 40%) 8,9%
  • Fimman ehf (Þórarinn Kristjánsson) 1,6%
  • Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga 0,3%

Frétt Akureyri.net fyrr í dag: N4 óskar eftir gjaldþrotaskiptum