Fara í efni
Fréttir

Landsbankahúsið verði keypt undir Ráðhús

Sigurður J. Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar, leggur til í grein á Akureyri.net í dag að Akureyrarbær skoði vandlega þann kost að kaupa Landsbankahúsið við Ráðhústorg, ljúki byggingu þess og flytji höfuðstöðvar „Hins bjarta norðurs“ að Ráðhústorgi. Bankinn hefur sem kunnugt er auglýst húsið til sölu.

Sigurður varpar fram þeirri hugmynd að í stað þess að fjárfesta 1,7 milljörðum til stækkunar og endurbóta núverandi Ráðhúss, eins og til stendur, nýti sveitarfélagið húsið áfram í núverandi mynd fyrir þá starfsemi sem ekki rúmast í Strandgötu 1.

Smellið hér til að lesa grein Sigurðar J. Sigurðssonar.