Fara í efni
Fréttir

Ný barnavöruverslun í miðbænum – Kara Kids

Hjónin Árni Fannar og Lovísa standa á bak við Kara Kids sem er ný verslun í Skipagötunni. Þau eru nýflutt til Akureyrar frá Reykjanesbæ. Veðurfar, auknir húsnæðismöguleikar, leikskólamál, nálægð við náttúruna og fleira spilaði inn í ákvörðun þeirra að koma norður.

Ný barnavöruverslun, Kara Kids, hefur opnað í miðbæ Akureyrar. Að versluninni standa hjónin Lovísa Sif Einarsdóttir og Árni Fannar Guðmundsson sem nýverið fluttu til bæjarins frá Reykjanesbæ með tvær ungar dætur.

„Við vorum hérna fyrir norðan nánast allt síðasta sumar og hugmyndin kviknaði þá,“ segir Lovísa. Í kjölfarið af dvölinni ákváðu þau að láta slag standa og setja heimili sitt í Reykjanesbæ á sölu og leita að hentugu húsnæði á Akureyri. Faðir Árna er búsettur á Akureyri og þá stunduðu þau bæði nám á sínum tíma við Háskólann á Akureyri, hún í líftækni og hann í lögreglufræðum. „Lovísa vildi sko flytja hingað á stúdentagarðana fyrir átta árum síðan,“ segir Árni Fannar og heldur áfram: „Svona hvað mig varðar, þá eru það aðallega veðurfarið sem dró mig hingað. Þetta er bara eins og að vera staddur á Tenerife miðað við Reykjanesbæ. Það er galið.“

Lovísa hefur fulla trú á því að barnavöruverslun þrífist á Akureyri. Áður en hún fór af stað með hugmyndina lagði hún fram markaðskönnum í Facebookhóp fyrir mæður á Akureyri og fékk mikið af svörum. Vöruúrvalið í versluninni segir hún að sé byggt á svörunum. 

Vöntun á barnavörum á Akureyri

Kara Kids er til húsa að Skipagötu 1, þar sem Fasteignasala Akureyrar var áður til húsa. „Ég hafði samband við allar fasteignasölur í bænum í september og sendi þeim nákvæma lýsingu á því hverju ég væri að leita að,“ segir Lovísa. Húsnæði í miðbænum fannst svo í lok nóvember og hjónin fluttu norður í janúar. 

Að sögn Lovísu varð hugmyndin um barnavöruverslun til þegar hún áttaði sig á því að lítið væri um slíka þjónustu á svæðinu. „Foreldrar hafa þurft að leita suður í allt, jafnvel óléttar konur hafa þurft að fara suður til að kaupa sér barnavagn,“ segir hún. Til að kanna hvort hugmyndin væri raunhæf setti hún inn markaðskönnun í Facebook-hópinn Múttur á Akureyri síðasta sumar. Viðbrögðin komu henni á óvart. „Ég fékk 372 svör á einum sólarhring en þá lokaði ég könnuninni svo ég gæti yfirfarið svörin. Ég er búin að rýna oft í þessa könnun og vöruúrvalið hér í dag er í raun niðurstaðan úr henni,“ segir Lovísa en í könnuninni kom meðal annars fram sterk eftirspurn eftir ákveðnum vörum. „Rúmlega 60 prósent báðu um bílstóla til Akureyrar og rúmlega 70 prósent vildu ullarföt frá Joha.“

Lovísa, sem er 27 ára, og Árni sem er 26 ára, eru nýflutt til Akureyrar með tvær ungar dætur og demba sér beint út í verslunarrekstur með barnavörur í miðbænum. 

Bílstólar, kerrur, fatnaður, leikföng, og fleira

Verslunin leggur áherslu á vörur fyrir ungbörn og yngri börn. Þar má meðal annars finna bílstóla, vagna og kerrur frá Silver Cross, ullarföt frá Joha, og barnaföt frá dönsku merkjunum Minymo, Fixoni og Okker-Gokker. Einnig verður boðið upp á svefnpoka fyrir ungbörn frá Love to Dream, kerrupoka frá Voksi, viðarleikföng frá Small Foot, sem og tæki sem framleiða svokallaðan „white noise“, hvítan hávaða sem getur hjálpað ungbörnum að róast og sofna.

„Fatastærðirnar núna ná upp í átta ára en í haust bætum við við upp í tíu ára,“ segir Lovísa og bætir við að markmiðið sé að stækka vöruúrvalið smám saman. Aðspurð út í nafnið Kara Kids þá tengist það hugmyndafræðinni á bak við verslunina. „Kara er tekið af orðinu care, sem þýðir umhyggja. Mér fannst það passa vel við barnavörur,“ segir Lovísa. Verslunin er einnig með netverslun sem sendir vörur um allt land, þó að megináherslan verði á þjónustu við heimamarkaðinn. „Við erum hér fyrst og fremst fyrir viðskiptavinina á svæðinu og það skiptir ótrúlega miklu máli að fólk styðji þjónustuna sem er til staðar hér,“ segir Lovísa sem hlakkar til að taka á móti viðskiptavinum í miðbæ Akureyrar.

Á besta stað í miðbænum. Kara Kids er með verslun að Skipagötu 1, rétt við Ráðhústorgið á Akureyri.