Fara í efni
Fréttir

KA slítur samstarfi um kvennaliðið

Mynd: Ármann Hinrik

Samstarfi Þórs og KA um kvennalið í knattspyrnu er lokið skv. heimildum akureyri.net. Samstarfssamningur rann út að loknu nýliðnu keppnistímabili og KA-menn hafa ákveðið að endurnýja hann ekki. Það verður væntanlega tilkynnt formlega í dag.

Félögin hafa haldið úti sameiginlegu liði í meistaraflokki í rúmlega þrjá áratugi, ýmist tvö eða í samstarfi við fleiri, og undanfarin ár hafa þau einnig átt í samstarfi í 2. og 3. aldursflokki sem lýkur einnig. Akureyrarfélögin tefldu fyrst fram sameiginlegu liði 1993 í nafni ÍBA en sem Þór/KA frá árinu 1999. 

Þór/KA hefur tvisvar orðið Íslandsmeistari, 2012 og 2017. Liðið varð í áttunda sæti Bestu deildarinnar í sumar, hélt sæti í deildinni með sigri á Víkingi í Reykjavík í lokaumferðinni en Víkingur og Valur féll úr deild þeirra bestu.

Meira síðar