Júlímánuður hlýr og þurr á Akureyri
Júlímánuður reyndist Akureyringum einstaklega hagstæður ef marka má nýtt tíðarfarsyfirlit Veðurstofu Íslands. Á meðan íbúar Suðvestur- og Vesturlands glímdu við óvenjumikla úrkomu og fremur svalt veður nutu Norður- og Austurland hlýinda, þurrka og mikils sólskins stóran hluta mánaðarins.
- Meðalhiti á Akureyri mældist 13,3 stig í júlí, sem er 2,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991–2020 og 1,5 stigum yfir meðallagi síðustu tíu ára.
- Þetta er fjórði hlýjasti júlímánuður sem mælst hefur á Akureyri frá upphafi mælinga.
- Aðeins árin 2021 og 2025 voru hlýrri og júlímánuður árið 1933 var álíka hlýr og í ár. Til samanburðar var meðalhitinn í Reykjavík aðeins 10,9 stig, eða 0,8 stigum undir meðallagi.
Úrkoma á Akureyri í júlí sögulega lítil
Mikill munur var einnig á úrkomu og fjölda sólskinsstunda milli landshlutanna.
- Á Akureyri féll aðeins 8,1 millimetri af úrkomu í mánuðinum, sem er einungis fjórðungur af meðalúrkomu í júlí.
- Aðeins einu sinni hefur mælst minni júlíúrkoma á Akureyri, en það var árið 1929.
- Á meðan mældust 102,6 millimetrar í Reykjavík, eða um tvöföld meðalúrkoma mánaðarins. Slík úrkoma hefur aðeins mælst fjórum sinnum áður í júlí í höfuðborginni.
- Sólríka veðrið á Norðurlandi endurspeglaðist einnig í sólskinsstundafjölda. Á Akureyri mældist 200,1 sólskinsstund í júlí, tæplega 48 stundum yfir meðallagi.
- Í Reykjavík mældust hins vegar 151,8 sólskinsstundir, sem er rúmlega 31 stund undir meðallagi.
Í heild segir Veðurstofan að júlí hafi verið mjög ólíkur eftir landshlutum. Suðvestlægar áttir voru ríkjandi framan af mánuði og ollu því að Norðurland og sér í lagi Austurland nutu óvenjulegra hlýinda og þurrka, á meðan Vestur- og Suðvesturland fengu óvenjumikla úrkomu. Undir lok mánaðarins snerist vindáttin til norðurs og þá kólnaði á Norður- og Austurlandi en veðrið tók að skána sunnan- og vestanlands.