Fréttir
Jón Steindór Árnason ráðinn til KEA
21.12.2020 kl. 11:57

KEA hefur ráðið Jón Steindór Árnason sem fjárfestingastjóra með áherslu á fjárfestingar í óskráðum hlutabréfum. Þetta kemur fram á heimsíðu KEA. Hann kemur til starfa í janúar.
Jón Steindór er 45 ára gamall viðskiptafræðingur með M.Sc. gráðu frá Háskóla Íslands. Hann er með 20 ára reynslu á íslenskum fjármálamarkaði.
Jón Steindór hefur meðal annars starfað í sérhæfðum fjárfestingum hjá Íslenskum verðbréfum og sem framkvæmdastjóri fjárfestingasjóðsins Tækifæris hf. Þar áður starfaði hann hjá FME og BYR. Þá hefur hann setið í fjölda stjórna á undanförnum árum.
Jón Steindór hefur verið framkvæmdastjóri Ásprents í rúmt ár, síðan í nóvember 2019.