Fara í efni
Fréttir

Jólatré og kveðja frá Randers – MYNDBAND

Ljósin hafa verið tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi en tréð er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku.

Vegna samkomutakmarkana þótti ekki ráðlegt að stefna bæjarbúum saman á Ráðhústorgi eins og hefð er fyrir við þetta tilefni, að því er segir á vef Akureyrarbæjar. Hins vegar var tekið upp stutt myndband þar sem sendiherra Danmerkur á Íslandi, Kirsten R. Geelan, flytur bæjarbúum jólakveðju frá vinum okkar í Danmörku og Barnakór Glerárkirkju undir stjórn Margrétar Árnadóttur syngur sálminn Þá nýfæddur Jesú í jötunni lá. 

Myndbandið gerði Dagný Hulda Valbergsdóttir.