Fréttir
Jólatorgið: Styttist í lok umsóknarfrests
07.10.2026 kl. 09:00
Jólatorgið verður starfrækt á Ráðhústorginu frá 21. nóvember og opið allar helgar fram að jólum. Nú styttist í að umsóknarfrestur um pláss renni út.
„Í skreyttum jólahúsum verður boðið upp á fjölbreyttan varning tengdan jólunum, með áherslu á gæðavörur á borð við mat, drykki, handverk og aðrar hátíðartengdar vörur. Hægt er að sækja um hús fyrir eina eða fleiri helgar og leiguverðið er 20.000 kr. fyrir eitt hús eina helgi. Heimilt er að tveir söluaðilar deili húsi,“ segir á vef Akureyrarbæjar, en sótt er um í gegnum þjónustugáttina.
Umsóknarfrestur fyrir söluaðila rennur út 11. október.