Fara í efni
Fréttir

Tilslakanir gagnast íþróttum og menningu

Slakað verður á samkomutakmörkunum vegna Covid-19 frá og með næsta miðvikudegi, 13. janúar. Á meðal breytinga eru að íþróttastarf er heimilað, opna má líkamsræktarstöðvar og fleiri mega sækja menningarviðburði en áður. Allt er þetta þó leyft með ákveðnum skilyrðum. Breytingarnar gilda til 17. febrúar.

Helstu breytingar eru þessar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.
  • Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ýtarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.
  • Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.
  • Íþróttakeppni: Íþróttakeppni barna og fullorðinna verður heimiluð, en án áhorfenda.
  • Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.
  • Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.

Akureyrsku íþróttaliðin hefja keppni á ný í lok næstu viku. Föstudagskvöldið 15. janúar leikur körfuboltalið Þórs í Grindavík, Kjarnafæðismótið í knattspyrnu hefst sama kvöld og daginn eftir tekur kvennalið KA/Þórs upp þráðinn, þegar stelpurnar mæta Haukum í Hafnarfirði. Heimsmeistaramótið í handbolta byrjar í Egyptalandi í vikunni þannig að efsta deild Íslandsmótsins hefst ekki fyrr en að því loknu, undir lok mánaðarins.