Fara í efni
Fréttir

Íslandsklukkunni var hringt 21 sinni

Hermann Biering hringir Íslandsklukkunni í dag. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Íslandsklukkunni á lóð Háskólans á Akureyri var hringt í dag eins og hefð er orðin fyrir á fullveldisdaginn, 1. desember. Að þessu sinni fékk Hermann Biering, nemi á þriðja ári í viðskipta- og sjávarútvegsfræði, það verkefni að hringja klukkunni 21 sinni – einu sinni fyrir hvert ár frá árþúsundamótum.

Fullveldisdagurinn er oftast haldinn hátíðlegur í Háskólanum á Akureyri en ekki var efnt til samkomu að þessu sinni og vegna kórónuveirufaraldursins voru aðeins fáein skólasystkini Hermanns viðstödd.

103 ár eru í dag síðan Sambandslögin milli Íslands og Danmerkur tóku gildi, en þar kom m.a. fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri frjáls og fullvalda ríki.

_ _ _ _ _

  • Íslandsklukka, verk Kristins E. Hrafnssonar, myndlistarmanns, var gerð til minningar um 1000 ára kristnitökuafmæli, landafundi í Vesturheimi og sögu þjóðarinnar í stóru og smáu. Akureyrarbær efndi til samkeppni um útilistaverk árið 1999, samkeppnin var öllum opin og bárust 62 tillögur. Í umsögn dómnefndar um Íslandsklukku Kristins sagði: „Stór klukka er látin tákna söguna með margvíslegum skírskotunum. Grunnform verksins, efni og stærðarhlutföll, eru fengin úr Hóladómkirkju og trjátegundin hlynur frá N-Ameríku. Íslandsklukkan er verk mjög í samræmi við tilefni samkeppninnar. Söguleg ártöl á klukkunni og hugmyndin að slá inn tímann á tyllidögum gefur því sögulegt og skemmtilegt yfirbragð. Hugmynd að staðsetningu fellur vel að umhverfinu. Verkið er stílhreint og fallegt.“

  • Akureyrarbær afhenti Háskólanum á Akureryi útilistaverkið til afnota árið 2001. „Árið 2000, þegar verkið var sett upp, var Háskólinn á Akureyri einungis 12 ára og átti því stutta sögu að baki og fáar hefðir. Kristinn skapaði með verkinu möguleika á að skapa hefðir, að ná saman sögunni og samtímanum, jafnframt hugsuninni um að við eigum alltaf hlutdeild í sögunni með því að skapa atburði. Kristinn er einn af virtustu og afkastamestu skúlptúristum landsins og verk eftir hann má sjá á fjölda staða jafnt innan dyra sem úti,“ segir á vef Akureyrarbæjar.