Fara í efni
Fréttir

Icewear tekur við rekstri við Goðafoss

Icewear tók um mánaðamótin við veitinga- og verslunarrekstri þjónustumiðstöðvarinnar við Goðafoss. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Reksturinn hefur verið í góðum höndum og mikil uppbygging á staðnum undanfarin ár og við ætlum að leggja okkur fram við að gera jafn vel og helst enn betur fyrir ferðaþjónustuna,“ segir Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Icewear, í tilkynningu frá fyrirtækinu. „Það er líka alveg tilvalið fyrir Akureyringa og nærsveitafólk að fá sér stuttan bíltúr í gegnum göngin og njóta þess að vera í þessu magnaða umhverfi. Veitingaaðstaðan er með útsýni yfir fossinn og það er notalegt að horfa yfir svæðið með góðan kaffibolla og kökusneið.”

Drífa ehf. rekur verslanir Icewear, Icewear Magasín, Arctic Explorer og Icemart ásamt vefverslun Icewear.is. Verslanir Drífu ehf. eru 19, flestar á höfuðborgarsvæðinu en tvær á Akureyri og aðrar á Vík í Mýrdal, í Vestmannaeyjum og nú í Bárðardalnum.

„Icewear mun áfram bjóða innlendum og erlendum gestum upp á kaffisölu og veitingar ásamt úrvali af fatnaði og gjafavöru sem tengist sögu Íslendinga og íslenskri náttúru,“ segir í tilkynningunni. Þar segir einnig: „Goðafoss er hluti af Demantshringnum og hefur verið einn vinsælasti áningarstaður ferðafólks á Norðurlandi. Fossinn er í Skjálfandafljóti í Bárðardal og er á meðal stærstu fossa landsins og af mörgum jafnframt talinn einn sá fallegasti. Goðafoss skipar sess í sögulegu samhengi en sagt er að Þorgeir Ljósvetningagoði hafi kastað hinum heiðnu goðum í fossinn eftir að hafa ákveðið að Íslendingar skyldu taka upp kristindóm og hafna heiðnum siðum.“