Fara í efni
Fréttir

Hyggjast efla nám í fjölmiðlafræði við HA

„Gríðarleg þróun hefur orðið í fjölmiðlum á síðustu árum ekki síst með tilkomu og aukinni útbreiðslu nýmiðla af ýmsu tagi. Auglýsing eftir nýjum starfskrafti er því gagngert til að auka fræðilega breidd brautarinnar og mæta mikilli eftirspurn eftir þessu námi,“ segir Birgir Guðmundsson, dósent í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri, á heimasíðu skólans.

Auglýst hefur verið eftir lektor í fjölmiðlafræði við Félagsvísindadeild HA. Er þetta liður í því að efla námið bæði hvað varðar kennslu og rannsóknargetu. Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á landinu sem býður uppá sérhæft BA nám í faginu, að því er segir á heimasíðunni. Nú stunda 63 stúdentar slíkt nám til BA gráðu við HA.