Hvít jörð í morgun og heldur kalt framundan
Hvít jörð var á Akureyri þegar bæjarbúar lyftu höfði frá kodda í morgun og spáð er norðlægri átt næstu daga, seinni partinn í dag gæti orðið slydda eða él og vindur allt að 13 metrum á sekúndu. Á morgun er spáð 8-13 metrum og éljum, og skv. Veðurstofunni verður um hiti um frostmark.
Örtröð hefur verið á dekkjaverkstæðum undanfarið og velflestir því væntanlega komnir með sumardekk undir ökutækin en þeir hrósa líklega happi sem hafa ekki enn komist að á verkstæðunum! Vegna aðstæðna er ástæða til að hvetja ökumenn til að fara varlega.
Veðurhorfur á landinu næstu daga eru sem hér segir, skv. vef Veðurstofu Íslands:
Norðlæg átt 3-10 metrar á sekúndu (m/s). Lítilsháttar él á norðaustanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Frost 0 til 3 stig norðan- og austantil en hiti að 5 stigum sunnan heiða.
Á föstudag – Breytileg átt 3-8 m/s, en norðan 8-13 austast. Skýjað með köflum og sums staðar dálítil rigning, en lítilsháttar slydda eða snjókoma ausantil og bjartviðri sunnanlands. Hiti 0 til 7 stig að deginum, en vægt frost á Norðaustur- og Austurlandi.
Á laugardag – Fremur hæg vestlæg átt og rigning eða súld öðru hverju, en bjart með köflum og yfirleitt þurrt austanlands. Hiti 4 til 8 stig, en í kringum frostmarki norðaustantil.
Á sunnudag – Norðlæg átt og dálítil slydda eða snjókoma norðan- og austantil og frost 0 til 3 stig, en að mestu bjart og hiti að 6 stigum sunnan heiða.
Á mánudag – Útlit fyrir breytilega átt með dálítilli rigningu eða súld við vestur- og norðurströndina, en annars bjartviðri.