Fara í efni
Fréttir

Hvetja til nýrra aðferða við guðfræðikennslu

Hólar í Hjaltadal. Héraðsfundur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprestakalls hefur þungar áhyggjur af stöðu mála þar. Mynd: Skapti Hallgrímsson

Héraðsfundur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprestakalls, sem haldinn var á Húsavík fyrr í mánuðinum, hvetur Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands (HÍ) „til að taka upp nýjar aðferðir til kennslu í guðfræði þannig að auðveldar verði fyrir landsbyggðarfólk að stunda guðfræðinám án þess að flytja til Reykjavíkur,“ eins og segir í ályktun sem samþykkt var samhljóða á fundinum.

Þar segir einnig: „Með nútímatækni má auka nám í fjarkennslu/lotunámi með nýjum hætti. Skortur á vígðum þjónum til þjónustu út á landi er áþreifanlegur og til að leysa það mál til framtíðar þurfi margþættar aðgerðir og ein þeirra er að breyta fyrirkomulagi námsins.“

Áhyggjur af Hólum

Á fundinum var einnig samþykkt ályktun þar sem þungum áhyggjum er lýst af stöðu mála að Hólum í Hjaltadal. „Mikilvægt er að ríkisvaldið marki Hólastað skýra stefnu til framtíðar og að staðnum verði sýndur sá sómi sem honum ber,“ segir í ályktuninni