Fréttir
Hvernig er hagsmuna atvinnulífsins gætt?
13.05.2025 kl. 10:00

Mynd af vef Akureyrarbæjar
Akureyrarbær og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE) standa fyrir Súpufundi atvinnulífsins á morgun, miðvikudaginn 14. maí kl. 11:30 á Múlabergi, Hótel KEA. Á fundinum verður sjónum beint að hagsmunagæslu atvinnulífsins og mikilvægi hennar fyrir stöðu og þróun svæðisins, að því er segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
Þar er spurt:
- Hvernig er hagsmuna okkar gætt?
- Hverjir tala fyrir svæðið – og með hvaða árangri?
Í pallborði taka þátt Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
„Súpa og létt spjall í afslöppuðu andrúmslofti. Öll áhugasöm úr atvinnulífinu eru hvött til að mæta, hlusta og taka þátt í umræðum. Í febrúar stóðu Akureyrarbær og SSNE fyrir Fyrirtækjaþingi Akureyrar í Hofi þar sem fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu kom saman og tók samtalið. Eitt af því sem stóð upp úr var skýr vilji þátttakenda til að hittast oftar og bera saman bækur sínar. Súpufundurinn er viðbragð við þeirri ósk,“ segir í tilkynningu frá Akureyrarbæ.
Skráning á fundinn fer fram hér