Fara í efni
Fréttir

Hrafndís Bára stefnir á 1. sæti hjá Pírötum

Hrafndís Bára Einarsdóttir sækist eftir því að verða í fyrsta sæti á lista Pírata í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningar í haust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hrafndísi.

Hrafndís var í þriðja sæti listans fyrir kosningarnar 2017 og var kosningarstjóri Pírata á Akureyri í síðustu sveitarstjórnarkosningum. „Pírötum vil ég bjóða krafta mína núna vegna þess að ég vil tilheyra spillingarlausum flokki. Ég vil tilheyra flokki með mikla réttlætiskennd og ég vil tilheyra hópi fólks sem starfar af heilindum og elju. Ég er tilfinninganæm og læs á fólk og hef því hrifist af því flotta fólki sem fer fyrir Pírötum og fengið góða tilfinningu fyrir þeim. Fyrir mér er tíminn núna, börn að vaxa úr grasi og ég tilbúin í ný verkefni,“ segir Hrafndís í tilkynningu.

Hún útskrifaðist með diplómagráðu í leiklist og framkomufræðum frá Kvikmyndaskóla Íslands árið 2010 og árið 2016 með diplómagráðu í viðburðastjórnun frá ferðamáladeild Háskólans á Hól­um. Hrafndís hefur unnið með börnum og unglingum í menningarstarfi af ýmsu t.d. leiklist.