Hópi drengja vísað af Landsmóti skáta
Hópi drengja var vísað af Landsmóti skáta sem fram fór á Hömrum á Akureyri fyrir nokkrum vikum vegna þess að „einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum,“ eins og segir í yfirlýsingu frá Bandalagi íslenskra skáta sem akureyri.net fékk senda í morgun eftir að hafa ítrekað fyrirspurn um málið frá því í gær. Í yfirlýsingunni kemur fram að lögregla og barnavernd hafi verið kölluð til en að öðru leyti er þar aðeins að finna almennar upplýsingar um málið.
Morgunblaðið segir í morgun að um sé að ræða hóp frá Katar, það hafi blaðið fengið staðfest hjá forsvarsmönnum Skátahreyfingarinnar og lögreglunni á Norðurlandi eystra. Snemma móts hafi orðið vart við „óviðeigandi áreitni af hálfu drengja í hópnum í garð stúlkna sem þátt tóku í mótinu en þar voru samankomnir skátar á aldrinum 10-17 ára,“ segir á mbl.is þar sem vísað er í frétt blaðsins. Þrátt fyrir tiltal mótshaldara hafi drengirnir ekki látið segjast, í kjölfarið hafi verið gripið til þess ráðs að auka öryggisgæslu á mótsstaðnum en þegar það dugði ekki til hafi lögregla verið kvödd á vettvang og fengin til að útskýra fyrir hópnum að hann yrði að yfirgefa mótsstaðinn, segir mbl.is.
Um 2000 skátar voru saman komnir að Hömrum, víðs vegar af landinu auk gesta frá 10 öðrum löndum.
Yfirlýsing Bandalags íslenskra skáta
„Á Landsmóti skáta að Hömrum á Akureyri fór fram vikulangt skátamót með þátttöku fjölda ungmenna. Til þess að stór samkoma af þessu tagi gangi vel fyrir sig er mikilvægt að allir þátttakendur fylgi reglum mótsins og þeim gildum sem skátastarf byggir á.
Einn hópur þurfti því miður að hætta þátttöku á mótinu þar sem einstaklingar innan hópsins fylgdu ekki settum reglum.
Til að tryggja velferð þeirra málið varðaði, þar á meðal þeirra ungmenna sem þurftu að yfirgefa mótið, var viðbragðsáætlun Æskulýðsvettvangsins fylgt. Í því felst m.a. að kalla til lögreglu og barnavernd og tryggja að viðeigandi fullorðnir aðilar geti tekið við umsjá þeirra ungmenna sem yfirgefa mótið og eru stödd hér á landi án forráðamanna.
Þar sem málið varðar ungmenni verður ekki farið nánar í einstök atvik eða aðstæður þeirra á opinberum vettvangi. Skátarnir leggja ríka áherslu á að gæta trúnaðar og hagsmuna allra þeirra barna og ungmenna sem hlut eiga að máli.“
- Frétt akureyri.net og myndasyrpa frá setningarhátíð mótsins: