Fara í efni
Fréttir

Höfðingleg gjöf Kiwanis til rannsóknastofu SAk

Rannsóknastofu í lífeðlisfræði á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) barst á vordögum höfðingleg gjöf frá Kiwanisklúbbum á Norðurlandi, heilalínuritstæki að verðmæti 3,2 milljóna króna. Frá þessu er greint á vef SAk.

„Nýja heilalínuritstækið mun nýtast skjólstæðingum lífeðlisfræðideildar, einkum börnum og bæta greiningu ýmissa höfuðáverka, flogaveiki og annarra heila- og taugasjúkdóma til muna. Tækið er mun fullkomnara en það sem fyrir var, það gefur möguleika á myndbandsupptökum auk þess sem sérfræðingar geta nú fylgst með heilaritum með fjarbúnaði í rauntíma sem bætir mjög úrlestur rannsókna,“ segir á vef SAk.

Í Kiwanisklúbbum á Norðurlandi, á Óðinssvæði eins og það er kallað, sem standa að gjöfinni, eru um 150 félagar. Klúbbarnir eru þessir:

  • Freyja - Sauðárkróki
  • Drangey - Sauðárkróki
  • Skjöldur - Siglufirði
  • Kaldbakur - Akureyri
  • Grímur - Grímsey
  • Skjálfandi - Húsavík
  • Herðubreið - Mývatnssveit
  • Askja - Vopnafirði

„Óeigingjarnt sjálfboðastarf af þessu tagi gerir kleift að rannsaka, greina og meðhöndla sjúkdóma á norðurlandi á besta hugsanlega hátt. Sjúkrahúsið á Akureyri þakkar kærlega fyrir höfðinglega gjöf,“ segir á vef stofnunarinnar.

Myndin var tekin þegar fulltrúar Kiwanisklúbba í Óðinssvæði afhentu fulltrúum rannsóknastofunnar heilalínuritann formlega þann 25. júní á fjölskylduhátíð í Ártúni í Grýtubakkahreppi. Það var svæðisstjóri Óðinssvæðis, Helgi Pálsson, sem afhenti gjöfina.