Fara í efni
Fréttir

Hnignun sjóbleikju – Hvað er til ráða?

Guðrún Una Jónsdóttir, formaður Stangaveiðifélags Akureyrar, með fallega bleikju.

Bleikjan – Styðjum stofninn eru nýstofnuð samtök sem hafa það að markmiði að gæta hagsmuna sjóbleikju og meta aðgerðir til að styrkja stofninn.

Í samstarfi við Stangaveiðifélag Akureyrar (SVAK), veiðifélögin í Eyjafirði og Fiskirannsóknir ehf. verður haldin opinn fundur um málefnið 19. apríl næstkomandi. Fundurinn verður í Deiglunni í Listagilinu og hefst kl. 20:00. Yfirskrift fundarins er Hnignun sjóbleikju – Hvað er til ráða?

Í tilkynningu segir að á fundinum verði stiklað á stóru um þá þætti sem teljast vera orsakavaldar hnignunarinnar og hvað sé til ráða. Fundarstjóri verður Sigmundur Ófeigsson en mælendur verða Högni Harðarson hjá Fiskirannsóknum ehf og Stefán Sigmundsson, verkfræðingur og stangveiðimaður.