Fara í efni
Fréttir

Hluti skíðasvæðisins opnaður á morgun

Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli verður opnað að hluta á morgun, föstudaginn 22. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bæjarins.

Fyrst um sinn verður aðeins neðri hluti svæðisins opinn þar sem enn vantar nokkuð af sjó til þess að óhætt sé að hleypa umferð á allar brekkurnar.

„Hólabraut og Hjallabraut verða opnaðar ásamt Töfrateppinu en síðustu daga hafa með fulltingi framleiðandans Sun Kid verið gerðar frábærar endurbætur á nýju yfirbyggingunni fyrir veturinn. Næstu daga verður unnið að því að ná tengingum við Fjarkann sem vonandi tekst að ljúka fyrir jóladag. Allt svæðið verður opnað um leið og snjóalög leyfa,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

Töluvert hefur snjóað í dag „sem er mikið ánægjuefni en það hefur snjóað óvenju lítið í vetur. Sá snjór sem unnið er með í brekkunum hefur að langmestu leyti verið framleiddur með snjóbyssunum þegar frost fer niður fyrir 4 gráður. Gestum er bent á að við þessar aðstæður getur verið stórhættulegt að skíða utan troðinna brauta þar sem snjóþekjan er víðast hvar þunn og stutt niður á grjót.“

OPIÐ VERÐUR Í HLÍÐARFJALLI UM JÓL OG ÁRAMÓT SEM HÉR SEGIR:

22. desember – klukkan 14.00 - 19.00

23. desember – Þorláksmessa –  10.00 - 15.00

24. desember – AðfangadagurLOKAР

25. desember – Jóladagur12.00 - 16.00

26. desember – Annar í jólum –  12.00 - 16.00

27. desember –  10.00 til 18.00

28. desember –  10.00 til 18.00

29. desember –  10.00 til 18.00

30. desember –  10.00 til 16.00

31. desember – Gamlársdagur –  10.00 - 15.00

1. janúar – Nýársdagur –  12.00 - 16.00

Með því að smella hér er að kaupa lyftumiða á heimasíðu Hlíðarfjalls.