Fara í efni
Fréttir

Hluti Kjarnavegar lokaður vegna vinnu

Unnið er að endurgerð Kjarnavegar sem liggur í gegnum Kjarnaskóg og er vegkaflinn á milli Kjarnakots og Sólskóga því lokaður. Einnig er unnið að endurgerð hluta vegar upp að blakvöllum, frá gatnamótum við Kjarnaveg og sú leið er því sömuleiðis lokuð. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Lokanir eru merktar rauðar á meðfylgjandi mynd. Stefnt er að því að opna vegina aftur fyrir umferð fyrir helgi en frekari lokanir eru væntanlegar á sama kafla seinna í sumar þegar verður malbikað.