Fara í efni
Fréttir

Hluti Höfðahlíðar lokaður næstu vikur

Höfðahlíð í Glerárhverfi er að hluta lokuð almennri bílaumferð frá og með deginum í dag, 26. júlí, vegna mikilla framkvæmda á svæðinu. Kaflinn sem lokunin nær til er á milli Skarðshlíðar og Háhlíðar – sjá myndina.

Opið verður fyrir umferð þeirra sem vinna á svæðinu, vinnutækja, íbúa í Drangshlíð og Hvammshlíð, auk þess sem strætó og viðbragðsaðilum verður gert kleift að komast um götuna. Þetta er tilkynnt á vef Akureyrarbæjar og þar er gestum Glerárlaugar bent á hjáleið um Melgerðisás.

Ekki er alveg ljóst á hversu lengi lokunin varir en hugsanlegt er að það verði í allt að þrjár vikur. Á svæðinu er verið að byggja leikskólann Klappir, gera nýtt plan við Drangshlíð, endurgera neðra bílastæðið við Glerárskóla, auk þess sem framkvæmdir eru hafnar við nýjan körfuboltavöll – Garðinn hans Gústa.